Jæja krakkar mínir góðir, hvað segiði gott? Hvað er að frétta?
Það er allt gott að frétta af mér og ætla ég nú ekki að hafa þennan
inngang lengri, heldur vinda mér beint í aðalatriðið en það er
ferðasagan frá London.
Ég vill byrja á að þakka samferðamönnum, Pandabjörn og Hr. Jack
Daniels og síðan vill ég þakka strákunum okkar úti sem við fórum að
hitta fyrir frábæra ferð og skemmtilega daga. En þá að sögunni.
Ég, Pandabjörn og Hr. Jack áttum flug eldsnemma á
föstudagsmorgninum og var ákveðið að ég myndi keyra á mínum glæsta
fák út á flugvöll. Á leiðinni út á flugvöll vottaði fyrir miklum
spenningi í mönnum og hressleikinn var á alls oddi. Keyptur var
dýrindis morgunverður úti á velli með bjór og tilheyrandi. Flugið
út gekk vel og vorum við mættir til Stansted á slaginu tíu og beið
þar eftir okkur bílstjóri með skemmtilegt spjald sem stóð á "Höddi
og pungarnir". Greiðlega gekk að keyra upp á hótel og fengum við
smá útsýnistúr með bílstjóranum í leiðinni. Þegar var komið upp á
hótel greiddum við strax herbergin og gekk það ekki alveg
áfallalaust fyrir sig, því þessir bretar virðast ekki vita hvað
debetkort er og er maxheimild á þau aðeins 100 pund á dag í
hraðbanka! Eftir smá vesen, komumst við loks upp á herbergin og
vorum við fljótir aftur til að fá okkur að borða og fara að sækja
Big Red. Hann mætti galvaskur á lestarstöðina með farangur út
mánuðinn, sængina sína og bangsann sinn. Fórum við upp á hótel til
að byrja ruglið af alvöru. Tekinn var smá glíma frammi á gangi, á
nærbuxunum einum fata og berum við líkamslýti eftir þá rimmu sem
herbergi 1075 vann, en í því herbergi voru ég og Hr. Jack. Skruppum
við síðan út að borða á Sticky Fingers sem er mjög góður staður.
Síðan var lestin tekin niður í bæ, í ranga átt reyndar en það var
allt í lagi því við vorum með birgðar. Fórum niður í Soho, sem við
komumst að seinna að væri hálfgert gay city of London, og vakti það
ekki mikla lukku. Erfitt reyndist að komast inn á staðina því þeir
voru allir með private party shit eitthvað! Komumst loksins inn á
einhvern á stað sem var leiðinlegri en Oliver! Tekið var eitt glas
þar og síðan fór öll okkar orka í að finna gentelmans club eins og
við viljum kalla þá og tókst það. Sísli komst í smá action þar og
gerði einhver breti grín af honum því Sísli var snöggur að færa
lappirnar til þegar stelpan steig frá honum og megið þið hugsa um
það. Þar kynntumst við Hr. High Five. Komumst heim áfallalaust
aftur og Hr. Jack ruglaði í drasl í stelpunum í lobbyinu.
Laugardagurinn var svakalegur. Vöknuðum um 12 leytið því Hr.
Atvinnumaður var búinn að redda okkur miðum á Charlton - Chelsea og
þurftum við að taka nokkrar lestir til að komast á þann leik. Hr.
Big Red sá um lestirnar og það er kannski ekki frásögufærandi en
okkur tókst að taka vitlausa lest og svona þannig að við misstum að
fyrstu 15 mín. en vorum nýlega sestir þegar eina mark leiksins kom.
Leikurinn var góð skemmtum og bara fyrirboði um gott
kvöld! Hr. Atvinnumaður kom og heimsótti okkur upp á
hótel þar sem við sátum og spjölluðum smá, ákváðum síðan að fara
bara aftur á Sticky Fingers að borða. Sem fyrr var maturinn góður.
Beitir blaðraði í einhvern hóp af krökkum að Hr. Atvinnumaður
spilaði fyrir Charlton og voru krakkarnir að springa úr spenningi
og sérstaklega tveir strákar, annar fékk að setjast á borðið hjá
okkur og hinn tók ekki augun af Rúrik nema til að skera sér
kjötbita svo hann gæti tuggið meðan hann horfði á hann! Frekar
fyndið að sjá. Rúrik var síðan búinn að panta fyrir okkur borð á
skemmtistað og var hann ekki af verri endanum! Þokkalega löng röð
var fyrir utan hann og þá er ég ekki að tala um vip röðina á
hverfis sem er lengri en hin! Eitt símtal og bam, gaur mættur út
til að taka á móti okkur, lét okkur fá þessi bönd um hendina og
síðan rölti hann með okkur að borðinu okkar sem var inni á vip
svæði staðarins sem enginn komst inná nema að vera með þessi bönd.
Vorum þar með gott útsýni yfir dansgólfið, þjón sem við kölluðum
bara á og svona. Pantaðir voru hinir ýmsir drykkir og þetta kom
ekki glösum því þú pantiðir bara heilar flöskur og síðan fékkstu
bland og svona. Beitir eða Hr. Jack Daniels eins og hann er
kallaður núna áttu pöntun kvöldsins þegar hann pantaði heila flösku
af Jack sem hann einn drekkur og kók. Tók hann tvo sjússa af
flöskunni og lét gott heita! Þetta var klárlega geggjaður staður og
þegar þú fórst á klósettið þá var gaur þar inni sem rétti þér
tissue, setti sápu í hendina á þér og kveikti á vaskinum fyrir þig
og síðan gastu fengið góða lykt hjá honum ef þig langaði.
Reikningurinn var ekki af verri endanum síðan þegar við vorum að
fara og þori ég nú ekki að gefa hann upp en við skulum bara segja
að þú myndir sjá feitt eftir þessari upphæð hérna heima en ekki
þarna því það var klárlega þess virði! Kvöldið endaði á
gentelmansclub og síðan heim á hótel. Kvöld sem maður gleymir
aldrei!
Sunnudagurinn var tekinn í rólegheitum, mynd leigð upp í
herbergi, horft á Manchester leikinn og svona. Hr. Big Red þurfti
að fara heim á sunnudagskvöldið og við strákarnir sem eftir vorum
fórum á T.G.I Fridays og röltum aðeins um bæinn áður en við fórum
upp á hótel að pakka og horfa á Superbowl og Hr. Pandabjörn að
horfa á eitthvað annað því hann var einn í herbergi. Vorum sóttir
snemma í morgun upp á hótel og okkur skutlað út á flugvöll.
Snilldarferð í alla staði og vill aftur þakka strákunum mínum
fyrir þessa ferð og vonandi verður hún endurtekinn í haust og þá
verður maður með ennþá meira inni á kortinu sínu!
Heitt: Gentelmansclub, High Five, Glíma, London, Cafe de
Paris,
Kalt: veðrið hérna heima, hraðbankar í London, Soho
Hörður kveður með minningu sem endist að eilífu....